Gjafalisti

Persónuverndarstefna

Síðast uppfært 8. október 2026

Gjafalisti safnar eins litlum upplýsingum og hægt er. Hér er útskýrt á mannamáli hvað við geymum, hvers vegna og hvernig þú losnar við það.

Ábyrgðaraðili

Gjafalisti er rekinn af DEC ehf., kt. 471119-1720, sem er ábyrgðaraðili persónuupplýsinga sem unnið er með á gjafalisti.is.

Hvað við geymum

Um eigendur lista: netfang (eða auðkenni frá Google eða Apple), dulkóðað lykilorð, tungumál og listana sjálfa – nöfn, dagsetningu, kveðju, gjafir og, ef þið kjósið, reikningsupplýsingar fyrir peningagjafir.

Um gesti: nafnið sem gestur skrifar þegar hann tekur frá gjöf, hvaða gjöf og hversu margar. Ef gestur gefur upp netfang sendum við honum eina staðfestingu með hlekk til að breyta frátektinni; eigendur listans sjá netfangið aldrei. Ekkert annað. Gestir þurfa ekki aðgang.

Tæknileg gögn: vafrakökur sem halda þér innskráðri/innskráðum, muna tungumál og muna hvaða gjafir þú tókst frá svo þú getir hætt við. Við notum engar auglýsinga- eða rakningarkökur.

Tölfræði: við teljum hve oft listi er opnaður og hve oft smellt er á hlekk í verslun. Það eru aðeins tölur; ekkert er geymt um þann sem skoðar og engin vafrakaka er notuð til þess. Við tökum líka saman samtölur um gjafir eftir verslunum, til dæmis fyrir hve mikið var tekið frá hjá tiltekinni verslun í mánuði, og getum deilt þeim með verslunum. Í slíkum samtölum koma aldrei fram nöfn, listar eða gestir.

Uppruni lista: þegar listi er stofnaður skráum við með honum hvort það var gert í iPhone-appinu, Android-appinu eða í vafra, hvaða vefur vísaði á okkur (aðeins heiti vefsins, t.d. google.com, aldrei síðan sjálf), herferðarmerki ef hlekkurinn bar slíkt og hvort stofnandinn hafði skoðað lista einhvers annars. Fram að því er þetta aðeins geymt í vafranum á meðan heimsóknin stendur, ekki í vafraköku, og hverfur þegar flipanum er lokað. Við notum það eingöngu til að vita hvaðan nýir listar koma.

Hverjir sjá hvað

Allir sem hafa hlekk á lista sjá listann, nöfn gesta sem hafa tekið frá gjafir og reikningsupplýsingar ef eigandi hefur skráð þær. Listar eru ekki skráðir hjá leitarvélum.

Eigendur lista sjá ekki hverjir tóku frá hvaða gjöf fyrr en þeir velja sjálfir að birta það.

Vöruupplýsingar og myndir

Þegar hlekkur á vöru er límdur sækjum við heiti, verð og mynd af síðu verslunarinnar. Myndirnar birtast beint frá versluninni og tilheyra henni. Verslanir sem vilja ekki að vörur þeirra birtist geta haft samband og við bregðumst strax við.

Vinnsluaðilar

Gögn eru hýst innan EES: gagnagrunnur og innskráning hjá Supabase (Írland) og vefurinn hjá Vercel (Dublin). Tölvupóstur fer í gegnum Resend (Írland).

Hversu lengi

Listar og aðgangar eru geymdir þar til þú eyðir þeim. Þú getur eytt lista í stillingum hans og aðganginum undir „Aðgangurinn minn“. Eyðing er endanleg og tekur gildi strax.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að gögnum þínum, láta leiðrétta þau eða eyða þeim, og að kvarta til Persónuverndar (personuvernd.is). Gestir sem vilja láta fjarlægja nafn sitt af lista geta hætt við frátektina eða haft samband við okkur.

Hafðu samband: hallo@gjafalisti.is

Börn

Þau sem eru yngri en 13 ára mega ekki stofna aðgang. Foreldri eða forráðamaður getur stofnað og séð um lista fyrir þeirra hönd.