Safnið vörum úr Epal, ELKO, Líf og list og hvaðan sem er á einn fallegan óskalista. Gestir taka frá gjöf á nokkrum sekúndum – án þess að stofna aðgang.
Eða prófið strax – límið hlekk á vöru úr hvaða verslun sem er
Brúðkaup
Anna & Jón
14. júní 2027
Líf og list
Vínglös, 8 stk.
3.560 kr. · 5 eftir
Taka frá
Epal
Borðlampi
Frátekið af: Sigga
Kokka
Steypujárnspottur
39.800 kr.
Taka frá
Gjafalistinn okkar
Skannið kóðann
Sigga tók frá 2 vínglös
EpalELKOLíf og listKokkaIKEAKúnígúndHúsgagnahöllinSnúranDIMMILVAJYSKCasaPenninnBYKO66°NorðurEpliEpalELKOLíf og listKokkaIKEAKúnígúndHúsgagnahöllinSnúranDIMMILVAJYSKCasaPenninnBYKO66°NorðurEpli
Þrjú skref. Engin kennsla.
01
Safnið
Úr hvaða verslun sem er, á einn lista
Líma hlekk
Afritið slóð á vöru úr hvaða vefverslun sem er. Við sækjum nafn, mynd og verð.
Skanna í búð
Standið þið í tengdri verslun? Skannið strikamerkið og varan kemur beint á listann með nafni, verði og hlekk, á meðan þið gangið að næstu hillu.
Skrifa inn
Upplifun, framlag í ferðasjóð eða „eitthvað fallegt úr Kokku“ – allt má fara á listann.
02
Deilið
Einn hlekkur. Einn QR-kóði á boðskortið.
Deilið listanum á Messenger eða í SMS, eða prentið QR-kóða á boðskortið. Enginn þarf lengur að hringja í mömmu til að spyrja hvar listinn er.
03
Gestir taka frá
Gestirnir þurfa ekkert að læra
Þeir opna hlekkinn, velja gjöf og skrifa nafnið sitt. Enginn aðgangur, ekkert app, ekkert vesen – og hægt að hætta við hvenær sem er.
Átta glös, sex diskar. Veljið fjölda og hver gestur tekur frá eins mörg og hann vill gefa. Enginn kaupir það sama tvisvar.
Þið sjáið aldrei hver tók hvað frá
Ekki fyrr en þið viljið. Þið sjáið hversu margt er frátekið, en gjafirnar koma á óvart – líka þótt þið opnið ykkar eigin hlekk.
Vínglös, 8 stk.
Líf og list · 3.560 kr.
Falið
Borðlampi
Epal · 48.900 kr.
Falið
Steypujárnspottur
Kokka · 39.800 kr.
—
Iittala Aalto
Kúnígúnd · 24.900 kr.
Falið
Þið sjáið hversu margt er frátekið. Aldrei hvað, og aldrei hver.
Ykkar listi, ykkar stíll
Látlaust og glæsilegt fyrir brúðkaupið. Litríkt og líflegt fyrir sex ára afmælið. Hvert tilefni á sitt útlit.
Nei. Gjafalisti er ókeypis, bæði fyrir ykkur og gestina.
Þurfa gestir að skrá sig?
Nei. Gestir opna hlekkinn, velja gjöf og skrifa nafnið sitt. Það er allt og sumt.
Hvaða verslanir virka?
Allar vefverslanir, íslenskar og erlendar. Við lesum vöruupplýsingar sjálfkrafa úr flestum þeirra, og ef það tekst ekki getið þið alltaf fyllt þær inn sjálf.
Er þetta gjafalisti eða óskalisti?
Bæði. Margir tala um gjafalista fyrir brúðkaupið og óskalista fyrir jólin eða afmælið, en það er sami listinn: þið setjið á hann það sem ykkur langar í, sendið hlekkinn og gestir taka frá.
Byrjum.
Fyrsta gjöfin er komin á listann eftir tvær mínútur.