Brúðkaup
Brúðargjafalisti sem nær yfir allar verslanir
Hingað til hafa brúðhjón þurft lista í hverri verslun fyrir sig og gestir hringt í foreldrana til að spyrja hvar listarnir væru. Með Gjafalista safnið þið öllu á einn brúðkaupsgjafalista og sendið gestunum einn hlekk.
Ókeypis. Gestir þurfa hvorki aðgang né app.
01
Allt á einum lista
Matarstellið úr einni verslun, hrærivélin úr annarri og framlag í brúðkaupsferðina. Límið hlekk á vöruna eða skannið hana í búðinni og hún er komin á listann með mynd og verði.
02
QR-kóði á boðskortið
Sækið QR-kóða og prentið á boðskortið, eða sendið hlekkinn á Messenger. Gestir opna listann í símanum, velja gjöf og skrifa nafnið sitt. Enginn aðgangur, ekkert app.
03
Enginn kaupir það sama tvisvar
Þegar gestur tekur frá gjöf sjá aðrir gestir það strax. Þið sjáið hversu margt er frátekið, en aldrei hvað eða hver, svo gjafirnar koma á óvart.
Hugmyndir að brúðargjöfum

Epal
Kay Bojesen api, lítill
18.900 kr.
Skoða í verslun
Kokka
Lodge járnpanna
4.500 kr.
Skoða í verslun
ELKO
DeLonghi Magnifica kaffivél
74.980 kr.
Skoða í verslun
Casa
Componibili hirsla, 3ja hæða
29.900 kr.
Skoða í verslun
Dorma
Dorma heilsárssæng, 200×220
46.900 kr.
Skoða í verslun
Snúran
Gluckigluck fiskakanna, XL, hvít
12.490 kr.
Skoða í verslun
Jens
Jöklaskál, Vatnajökull, lítil stálskál
5.500 kr.
Skoða í verslun
Spilavinir
Azul á íslensku
7.480 kr.
Skoða í verslun
Dimm
Skurðarbretti úr ólífuviði, lítið
9.990 kr.
Skoða í verslun
Nexus
7 Wonders Duel
4.795 kr.
Skoða í verslun
Spurt og svarað
- Hvernig biðjum við um pening án þess að það sé vandræðalegt?
- Bætið við reikningsupplýsingum á listann ásamt stuttum skilaboðum, til dæmis að þið séuð að safna fyrir brúðkaupsferð. Gestir sem vilja gefa pening finna þær þar, án þess að það þurfi að standa á boðskortinu.
- Hvenær eigum við að búa til listann?
- Flest brúðhjón deila listanum með boðskortinu, tveimur til þremur mánuðum fyrir brúðkaupið. Það tekur nokkrar mínútur að byrja og þið getið bætt á hann fram á síðasta dag.
- Er brúðargjafalisti það sama og brúðkaupsgjafalisti?
- Já, þetta er sami listinn undir fleiri en einu nafni. Hvort sem þið kallið hann brúðargjafalista, brúðkaupsgjafalista eða brúðkaupslista virkar hann eins: allar gjafirnar á einum stað og einn hlekkur fyrir gestina.
Fyrir öll tilefni