Gjafalisti

Ferming

Fermingargjafalisti sem ættingjarnir ráða við

„Hvað langar hana í?“ er spurning sem foreldrar fermingarbarna svara tugum sinnum á vorin. Setjið óskirnar á einn lista, sendið hlekkinn í fjölskylduhópinn og látið listann sjá um afganginn.

Búa til gjafalista

Ókeypis. Gestir þurfa hvorki aðgang né app.

  1. 01

    Úr hvaða verslun sem er

    Heyrnartól úr raftækjaverslun, rúmföt, bækur og framlag í ferðasjóð. Límið hlekk á vöruna og hún birtist með mynd og verði. Foreldri og fermingarbarn geta séð um listann saman.

  2. 02

    Ömmur og afar ráða við þetta

    Gestir opna hlekkinn, velja gjöf og skrifa nafnið sitt. Það þarf hvorki aðgang né app og hægt er að hætta við hvenær sem er.

  3. 03

    Peningagjafir á smekklegan hátt

    Flest fermingarbörn fá pening. Bætið reikningsupplýsingum á listann svo þeir sem vilja leggja inn finni þær, ásamt orðum um hvað verið er að safna fyrir.

Hugmyndir að fermingargjöfum

Sjá allar 103 hugmyndirnar

Spurt og svarað

Má fermingarbarnið búa til listann sjálft?
Þau sem eru orðin 13 ára mega stofna aðgang. Við mælum með að foreldri sé með á listanum, og það er einfalt: bjóðið hinu með boðshlekk og þá getið þið bæði bætt á hann.
Sér fermingarbarnið hver gefur hvað?
Nei. Þau sem eiga listann sjá aðeins hversu margt er frátekið, þannig að gjafirnar koma á óvart á fermingardaginn.

Byrjum.

Fyrsta gjöfin er komin á listann eftir tvær mínútur.

Búa til gjafalista