Gjafalisti

Brúðkaup

Brúðargjafalisti sem nær yfir allar verslanir

Hingað til hafa brúðhjón þurft lista í hverri verslun fyrir sig og gestir hringt í foreldrana til að spyrja hvar listarnir væru. Með Gjafalista safnið þið öllu á einn brúðkaupsgjafalista og sendið gestunum einn hlekk.

Búa til gjafalista

Ókeypis. Gestir þurfa hvorki aðgang né app.

  1. 01

    Allt á einum lista

    Matarstellið úr einni verslun, hrærivélin úr annarri og framlag í brúðkaupsferðina. Límið hlekk á vöruna eða skannið hana í búðinni og hún er komin á listann með mynd og verði.

  2. 02

    QR-kóði á boðskortið

    Sækið QR-kóða og prentið á boðskortið, eða sendið hlekkinn á Messenger. Gestir opna listann í símanum, velja gjöf og skrifa nafnið sitt. Enginn aðgangur, ekkert app.

  3. 03

    Enginn kaupir það sama tvisvar

    Þegar gestur tekur frá gjöf sjá aðrir gestir það strax. Þið sjáið hversu margt er frátekið, en aldrei hvað eða hver, svo gjafirnar koma á óvart.

Hugmyndir að brúðargjöfum

Sjá allar 107 hugmyndirnar

Spurt og svarað

Hvernig biðjum við um pening án þess að það sé vandræðalegt?
Bætið við reikningsupplýsingum á listann ásamt stuttum skilaboðum, til dæmis að þið séuð að safna fyrir brúðkaupsferð. Gestir sem vilja gefa pening finna þær þar, án þess að það þurfi að standa á boðskortinu.
Hvenær eigum við að búa til listann?
Flest brúðhjón deila listanum með boðskortinu, tveimur til þremur mánuðum fyrir brúðkaupið. Það tekur nokkrar mínútur að byrja og þið getið bætt á hann fram á síðasta dag.
Er brúðargjafalisti það sama og brúðkaupsgjafalisti?
Já, þetta er sami listinn undir fleiri en einu nafni. Hvort sem þið kallið hann brúðargjafalista, brúðkaupsgjafalista eða brúðkaupslista virkar hann eins: allar gjafirnar á einum stað og einn hlekkur fyrir gestina.

Byrjum.

Fyrsta gjöfin er komin á listann eftir tvær mínútur.

Búa til gjafalista