Gjafalisti

Afmæli

Afmælisgjafalisti, frá sex ára til sextugs

Foreldrar bekkjarfélaga spyrja hvað barnið langi í, og fertugur vinur segist „ekki þurfa neitt“. Óskalisti leysir hvort tveggja: gestir velja af lista og enginn kemur með það sama.

Búa til gjafalista

Ókeypis. Gestir þurfa hvorki aðgang né app.

  1. 01

    Barnaafmæli með stíl

    Veljið litríkt útlit eins og konfetti, kisur eða geim. Setjið óskir barnsins á listann og sendið hlekkinn með boðinu í bekkjarhópinn.

  2. 02

    Gestir velja á hálfri mínútu

    Hlekkurinn opnast í símanum, gesturinn velur gjöf og skrifar nafnið sitt. Aðrir sjá strax hvað er frátekið.

  3. 03

    Stórafmæli og sameiginlegar gjafir

    Setjið dýrari óskir á listann ásamt reikningsupplýsingum, svo vinahópar geti lagt saman í eina veglega gjöf.

Hugmyndir að afmælisgjöfum

Sjá allar 424 hugmyndirnar

Spurt og svarað

Er þetta ekki frekt gagnvart gestum?
Flestir gestir eru fegnir að fá hugmyndir. Listinn er tillaga, ekki krafa: hafið á honum gjafir á ýmsu verði og gestir velja það sem þeim hentar, eða koma með eitthvað annað.
Get ég búið til lista fyrir barnið mitt?
Já. Foreldrar búa til og sjá um lista fyrir börn yngri en 13 ára. Barnið sér ekki hvað er frátekið.

Byrjum.

Fyrsta gjöfin er komin á listann eftir tvær mínútur.

Búa til gjafalista